Kogga og Magnús

Jim Smart

Kogga og Magnús

Kaupa Í körfu

Í fallegu húsi á Laugarnestanganum búa hjónin og listamennirnir Kolbrún Björgólfsdóttir og Magnús Kjartansson. Húsið keyptu þau árið 1978 en á þeim tíma var það ónýtur hjallur, sem skordýr höfðu tekið yfir eftir að útigangsfólk hafði nánast yfirgefið það. Kogga og Magnús voru tiltölulega nýkomin heim úr námi og fjárfestu í þessu húsi vegna þess að það fékkst fyrir lítinn pening og síðan hafa þau verið að gera það upp, eða nánast endurbyggja það, auk þess að byggja við það fallega sólstofu. Í húsinu eiga þau heimili, auk þess sem vinnustofa Koggu er þar

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar