Hraði á bóndadaginn

Ragnar Axelsson

Hraði á bóndadaginn

Kaupa Í körfu

Ástin mín er yndisleg, ungar, rjóðar kinnar. Á hraða ljóssins hendist ég heim til konu minnar. Eitthvað á þessa leið gæti ökumaðurinn hafa hugsað er hann þeyttist áfram í umferðinni síðdegis á bóndadag, vonandi ánægður með dagsverkið og spenntur yfir því hvað biði hans áfangastað. Útsýnið virðist einnig vera gott þar sem jeppabifreið hans gnæfir yfir aðra vegfarendur. Ökumenn skulu þó muna eftir hámarkshraðanum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar