Hvammsvík

Þorkell Þorkelsson

Hvammsvík

Kaupa Í körfu

"ÞAÐ er talsverð traffík hérna á annatíma sumarsins. Núna er mest að gera um helgar," segir Pétur Blöndal Gíslason, sem rekur afþreyingarþjónustu í Hvammsvík í Hvalfirði, þar sem m.a. er boðið upp á veiði, kajakferðir, sjóstangaveiði, grillveislur og hægt að tjalda. Þá er þar golfvöllur þar sem allir eldri borgarar á veitusvæði Orkuveitu Reykjavíkur geta farið ókeypis í golf. MYNDATEXTI: Talsverður jarðhiti hefur fundist í landi Hvammsvíkur í Hvalfirði og hefur Orkuveita Reykjavíkur áform um að nýta jarðhitann þar í framtíðinni með einhverjum hætti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar