Flak breskrar sprengjuflugvélar sótt
Kaupa Í körfu
ÞEIR létust allir samstundis, mennirnir fjórir sem voru um borð í breskri sprengjuflugvél af gerðinni Fairey Battle, en hún fórst á jökli sem er á hálendinu milli Eyjafjarðar og Öxnadals 26. maí 1941. Brotlendingin er talin hafa verið mjög harkaleg. Nú rúmlega 60 árum eftir að vélin fórst er búið að hreinsa svæðið á jöklinum, en 15 manna leiðangur var að störfum í vikunni og lauk við hreinsunarstarfið. Meðal annars voru líkamsleifar mannanna fluttar með þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-LÍF til Akureyrar. Hörður Geirsson á Akureyri leitaði vélarinnar í yfir 20 ár og bar leitin loks árangur síðsumars 1999. Hann hefur alls farið 22 ferðir á jökulinn á undanförnum árum. MYNDATEXTI: Um borð í sprengjuvélinni voru fjórir menn, Bretarnir Hopkins, Garret og Talbot og flugstjórinn, Arthur Round, sem var Nýsjálendingur. Einhver þeirra hefur gengið í þessum skó.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir