Mannlíf í Edinborg

Skapti Hallgrímsson

Mannlíf í Edinborg

Kaupa Í körfu

Mannskepnan hefur eitt og annað að lifibrauði, en þessi Skoti sem Morgunblaðið rakst á í Edinborg í vikunni á sér líklega ekki marga starfsbræður. Á pappanum stendur: "Á hvolfi og lít út eins og hálfviti, en mér er alveg sama, svo fremi atriðið mitt kemur þér til að hlæja." Óhætt er að segja að hann hafi náð takmarki sínu - vegfarendur á Princess Street, aðalgötu bæjarins neðan við kastalann, höfðu gaman af. Og þegar fólk henti smámynt í dallinn við hlið pappaspjaldsins heyrðist kallað "Takk fyrir" úr fötunni. Skemmtilegt!

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar