Hlíðarrétt

Hlíðarrétt

Kaupa Í körfu

Réttir Réttað var á Hlíðarrétt við Reykjahlíð á sunnudag og Baldursheimsrétt en göngur hófust bæði á Suður- og Austurafrétt á föstudag. Í Mývatnssveit eru ríflega 5.000 vetrarfóðraðar kindur en margir bændur eru komnir með sitt fé í lokuð hólf og þurfa ekki að leggja til menn í göngur. Á Hlíðarrétt voru um 2.000 kindur og gekk greiðlega að draga féð sundur. Mikið fjölmenni var á réttinni og fer fjölgandi ár frá ári, ekki síst erlendum ferðamönnum. Fjártala er nú svipuð síðustu ár. Lömbin eru misvæn og mun þurrkatíð í sumar valda fremur litlum vexti þeirra. MYNDATEXTI: Drátturinn gekk vel, en um 2000 kindur komu af fjalli í göngunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar