Kínverjar kynna skipasmíðar

Jim Smart

Kínverjar kynna skipasmíðar

Kaupa Í körfu

Kínversk samtök í skipasmíðum kynna starfsemi sína hér á landi "Þetta er í fyrsta sinn, sem við kynnum starfsemi okkar á Íslandi. Tilgangurinn er að koma á viðskiptasamböndum við íslenzka útvegsmenn og í framhaldi þess, samvinnu á sem flestum sviðum. Við erum samtök aðila í skipasmíðum og þjónustu við hann og útgerðir bæði fiskiskipa og kaupskipa og getum því boðið nánast allt sem þarf til að smíða skip," segir Bao ShengQing, formaður samtaka kínverskra skipasmíðastöðva og framleiðenda véla fyrir sjávarútveginn. MYNDATEXTI: Kynning Fulltrúar kínverskra skipasmiðja voru hér á landi í síðustu viku til að kynna íslenzkum útvegsmönnum starfsemi sína.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar