Margrét Guðlaugsdóttir og Guðmundur Aðalsteinsson

©Kristinn Ingvarsson

Margrét Guðlaugsdóttir og Guðmundur Aðalsteinsson

Kaupa Í körfu

Það klingir í óróum á nokkrum stöðum í kring um okkur. Á veggnum hanga skrautlegar kaffikrúsir, úti í horni fagurblár fjaðurbogi, postulínsfuglar gægjast til okkar úr hillum og inni í setustofu bíður saumavélin þess að húsfrúin taki til við saumana. Nei, við erum ekki stödd á heimili einhverra sérdeilis húslegra íbúa heldur á Æsustöðum, hjólhýsi heiðurshjónanna Guðmundar Aðalsteinssonar bílstjóra og Margrétar Guðlaugsdóttur saumakonu. Híbýlin atarna standast reyndar alveg samanburðinn við hvaða meðalheimili sem er, hvort heldur sem litið er til þæginda eða herbergjafjölda, enda státa þau af svefnherbergi, snyrtingu með sturtu, setustofu með eldhúskrók og sjónvarpi að ógleymdu fortjaldinu, sem gegnir allt í senn hlutverki glæsilegrar stofu, borðstofu og eldhúss.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar