Hálandaleikar

Sigurður Elvar

Hálandaleikar

Kaupa Í körfu

Hollenskur sigurvegari á Hálandaleikunum Hollendingurinn Wout Ziljstra sigraði á Íslandsmótinu í Hálandaleikum sem fram fór á Akranesi um helgina. Mótið fór fram á skógræktarsvæðinu, Garðalundi, og var töluverður fjöldi sem fylgdist með leikunum í blíðskaparveðri. Kraftajötnarnir voru að sjálfsögðu í skotapilsum á meðan keppni stóð yfir en annar á eftir Ziljstra varð Pétur Guðmundsson sem á Íslandsmetið í kúluvarpi. Skotinn Colin Brecy varð þriðji. MYNDATEXTI: Kraftlyftingamaðurinn Auðunn Jónsson var einn af keppendum á Hálandaleikunum á Akranesi. Hilmar Sigvaldason Tindaflöt 1 - 202 300 Akranes hilmarphoto@simnet.is 894-3010 / 431-3010

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar