Ísland - Búlgaría 1-3

Golli/Kjartan Þorbjörnsson

Ísland - Búlgaría 1-3

Kaupa Í körfu

Það er létt yfir landsliðsmönnum Íslands í knattspyrnu sem nú búa sig undir landsleikinn í Búdapest á morgun. Á meðan þeir teygðu vel á eftir æfinguna í gær byrjuðu menn að skvetta vatni hver á annan og fór fyrirliðinn, Eiður Smári Guðjohnsen, þar fremstur í flokki. Síðan var hann beðinn um að koma í sjónvarpsviðtal. Þegar hann var að svara fyrstu spurningu stúlkunnar sem ræddi við hann gengu félagar hans, þeir Heiðar Helguson og Jóhannes Karl Guðjónsson, framhjá og sturtuðu yfir hann vatni. Eiður lét sér ekki bregða, stoppaði í miðri setningu eitt augnablik og hélt síðan áfram eins og ekkert hefði í skorist. Sjónvarpskonunni var hins vegar talsvert brugðið. MYNDATEXTI:Eiður Smári

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar