Halldór Ásgrímsson og Laila Freivalds

Halldór Ásgrímsson og Laila Freivalds

Kaupa Í körfu

Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Laila Freivalds, utanríkisráðherra Svíþjóðar, áttu fund í Ráðherrabústaðnum síðdegis í gær þar sem þau ræddu auk annars þróun sameiginlegrar öryggis- og varnarmálastefnu Evrópusambandsins, samrunaferlið í Evrópu í ljósi væntanlegrar stjórnarskrár ESB og áherslur landanna á 59. allsherjarþingi SÞ, sem hefst í New York síðar í mánuðinum. Að loknum fundi þeirra ræddu ráðherrarnir stuttlega við fréttamenn. MYNDATEXTI: Halldór Ásgrímsson og Laila Freivalds í Ráðherrabústaðnum í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar