Íslenska Óperan kynnir vetrarstarfið

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Íslenska Óperan kynnir vetrarstarfið

Kaupa Í körfu

Gamla bíó | Íslenska óperan kynnti í gær vetrardagskrá sína með óhefðbundum hætti. Óperan sýnir í vetur óperutryllinn Sweeney Todd, sem fjallar um ógurlega hefndarför bartskerans Sweeney Todd gegn úrkynjuðum dómara sem svipti hann lífinu og hamingjunni. Sweeney hakkar fórnarlömb sín niður og nýtur aðstoðar frú Lóett, sem býr til úr þeim kjötbökur. Í þeim anda bar sópraninn Ingveldur Ýr Jónsdóttir, sem fer með hlutverk hennar fram "girnilegar kjötbökur." Örn Árnason leikari, sem þreytir nú frumraun sína hjá Óperunni, kunni vel að meta veitingarnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar