Nemendur Sveaskolen - Samherji

Kristján Kristjánsson

Nemendur Sveaskolen - Samherji

Kaupa Í körfu

ÞEIM féll ekki lyktin, sænsku nemendunum sem fóru í skoðunarferð um borð í ísfisktogarann Björgúlf EA í Dalvíkurhöfn. En að öðru leyti virtist þeim þykja nokkuð varið í að skoða sig um um borð í togaranum og fá upplýsingar um hvernig veiðar færu fram á Íslandsmiðum. Um fjörutíu manns, 25 nemendur, fimm kennarar og tíu foreldrar, hafa dvalið á Dalvík í vikunni og kynnt sér líf og störf bæjarbúa. Dalvíkurskóli er þátttakandi í þriggja ára Comeniusarverkefni sem heitir "Þegar sólin rís" en níu skólar víðs vegar um Evrópu taka þátt í verkefninu. Skólinn fékk svo boð frá Sveaskolan í Örebro um að vera með í verkefni sem styrkt er af Nord Plus Junior en sá sjóður styrkir m.a. nemendaheimsóknir milli Norðurlandanna. Nemendur í 5. bekk Dalvíkurskóla munu svo næsta vor endurgjalda heimsókn sænsku nemendanna....Þau fóru í landvinnslu Samherja og fylgdust með fiskvinnslunni. MYNDATEXTI: Allt fullt af fiski: Krakkarnir skoða þorsk í landvinnslu Samherja á Dalvík.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar