Garðar Hannes Friðjónsson

Garðar Hannes Friðjónsson

Kaupa Í körfu

Útveggur Þingholtsstrætis 3 var skrýddur óvenjulegu veggfóðri í gær er hann var þakinn þúsund króna seðlum. Það var fasteignafélagið Eik sem stóð fyrir þessu óvenjulega veggfóðri og að sögn forsvarsmanna fyrirtækisins var markmiðið að vekja athygli forsvarsmanna fyrirtækja á þeim kostum sem fylgja því að leigja atvinnuhúsnæði í stað þess að eiga það, auk þess sem Eik hefur hleypt af stokkunum nýrri þjónustuleið sem nefnist fasteignaráðgjöf og leit. MYNDATEXTI: Garðar Hannes Friðjónsson, framkvæmdastjóri Eikar, við veggfóðraða vegginn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar