Grænmeti

Sigurður Sigmundsson

Grænmeti

Kaupa Í körfu

Flúðir | Garðyrkjubændur á Flúðum og nágrenni hafa nýtt sér hægan norðaustanblæinn og sólfarið til uppskerustarfa síðustu daga. Skiptir ekki máli hvað dagarnir heita þegar bjarga þarf miklum verðmætum í hús. ...... Þessar duglegu konur létu ekki sitt eftir liggja í törninni. Þær voru að pakka fallegum og litfögrum gulrótum þegar fréttaritari Morgunblaðsins var á ferð við eina garðyrkjustöðina á Flúðum fyrr í vikunni. Á myndinni eru frá vinstri: Tinna Rúnarsdóttir, Steinunn Anna Hannesdóttir, Ragnhildur Þórarinsdóttir, Kristín Karólína Ólafsdóttir og Sigrún Tómasdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar