Ólafsfjörður

Kristján Kristjánsson

Ólafsfjörður

Kaupa Í körfu

Vatnslagnir höfðu ekki undan á Ólafsfirði og því flæddi vatn um allan bæ. Skurðir sem gerðir voru ofan Ólafsfjarðar í kjölfar mikilla skriðufalla árið 1988 björguðu því nú að ekki varð stórtjón í bænum í úrhellisrigningu aðfaranótt þriðjudags að mati Ara Eðvaldssonar en hann var staddur á skrifstofu sýslumanns, Ástríðar Grímsdóttur, sem einnig er formaður almannavarnarnefndar bæjarins. Hættuástand skapaðist ekki í bænum, en nokkurt tjón varð á fjölda fasteigna vegna þess að vatn flæddi upp um niðurföll. MYNDATEXTI: Einar Þórarinsson, veitustjóri í Ólafsfirði, hreinsar burt grjót undan hitaveitulögninni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar