Riley E. Dunlap

Þorkell Þorkelsson

Riley E. Dunlap

Kaupa Í körfu

BANDARÍSKI umhverfisfélagsfræðingurinn Riley E. Dunlap er staddur hér á landi og flytur fyrirlestur í dag á námsstefnu um sjálfbæra þróun sem fram fer í Háskóla Íslands, en þar munu fjölmargir fræðimenn flytja erindi um sjálfbæra þróun og ýmsar hliðar hennar. Í erindi sínu mun Dunlap, sem nú er prófessor við Åbo-háskóla í Finnlandi, meðal annars fjalla um fræðigreinina sjálfa, en rannsóknir hans á umhverfishygð og tengslum samfélaga og umhverfis voru meðal þeirra fyrstu sem gerðar voru á því sviði. Er hann því talinn meðal frumkvöðla fræðigreinarinnar. MYNDATEXTI:Riley E. Dunlap er meðal frumkvöðla heims í umhverfisfélagsfræði og hefur stundað umfangsmiklar rannsóknir á því sviði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar