Nú er úti veður vont

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Nú er úti veður vont

Kaupa Í körfu

BÖRNIN á leikskólanum á Klömbrum við Háteigsveg í Reykjavík biðu í eftirvæntingu eftir "táknmálsbangsanum" í gær í tilefni af degi heyrnarlausra á sunnudaginn kemur. Slagveðrið gerði það hins vegar að verkum að ekki var hægt að fara út að taka á móti honum og því biðu þau eftir honum í tryggu skjóli. Spáð er skúrum um sunnanvert landið í dag en bjartviðri á sunnudag með heldur kólnandi veðri. Í öðrum landshlutum er spáð skúrum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar