Gilið - framkvæmdir

Kristján Kristjánsson

Gilið - framkvæmdir

Kaupa Í körfu

Akureyri | Umfangsmiklar framkvæmdir hafa staðið yfir neðst í Kaupvangsstræti á Akureyri undanfarnar vikur. Skipt hefur verið um malbik, byggðar nýjar umferðareyjar, gerðar lagfæringar á gangstéttum og þá hefur malbikið verið fjarlægt á móts við göngugötuna, gatan hækkuð og fallegir steinar settir í staðinn. Einnig hefur verið sett þrenging í götuna, meðal annars með það að markmiði að hægja á umferð um Gilið. Það hefur verið heldur votviðrasamt á Akureyri, eins og víðast um landið, síðustu dagana og þeir Orri Jóhannsson og Hrannar Sigursteinsson voru því klæddir í samræmi við veðrið við vinnu sína.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar