Afmælisveisla hjá Eddu Björk

Afmælisveisla hjá Eddu Björk

Kaupa Í körfu

Það er frekar hljótt í húsinu. Þrátt fyrir yfirstandandi veisluhöld hljómar engin tónlist, það er ekkert skvaldur og í stað hálfrökkurs með tilheyrandi kertaljósum eru híbýlin rækilega upplýst. Af og til heyrast hláturrokur, eins og upp úr þurru, en þær eiga þó sinn uppruna í líflegu samtali. Það fer ekki á milli mála að hér er gleðin allsráðandi þótt enginn sé glaumurinn. Þetta er ekki eina hljóðláta fertugsafmælið á Íslandi í ár. Alls eru þau 32 talsins, afmæli fólks sem á það sameiginlegt að vera heyrnarlaust eða heyrnarskert, en langflest fæddist það í kjölfar rauðuhundafaraldurs sem reið yfir landið árið 1964. MYNDATEXTI: Klappað fyrir afmælisbarninu

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar