Halldór Ásgrímsson og Jean-Pierre Raffarin

Skapti Hallgrímsson

Halldór Ásgrímsson og Jean-Pierre Raffarin

Kaupa Í körfu

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Jean-Pierre Raffarin forsætisráðherra Frakklands funduðu í dag í embættisbústað Raffarins. Frakkland. Raffarin væntanlegur í heimsókn til Íslands. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra fundaði með Jean-Pierre Raffarin, forsætisráðherra Frakklands, í gær í París. "Við töluðum um samskipti landanna fyrst og fremst, möguleika á að auka samskipti Íslands og Frakklands, sérstaklega í framhaldi af þessari sýningu. Það er mikill áhugi á Íslandi fyrir Frakklandi og við vitum að það er líka mikill áhugi hér," sagði Halldór við blaðamenn eftir fundinn. MYNDATEXTI: Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Jean-Pierre Raffarin, forsætisráðherra Frakklands, funduðu í dag í embættisbústað Raffarins og ræddu þeir meðal annars alþjóðamál og samvinnu landanna á sviði efnahagsmála.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar