Tóku þátt í þýskri sinfóníuhljómsveit æskunnar

Tóku þátt í þýskri sinfóníuhljómsveit æskunnar

Kaupa Í körfu

Tónlist | Tóku þátt í þýskri sinfóníuhljómsveit æskunnar og heimildarmynd eftir mág Stanleys Kubricks Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, 18 ára, Eydís Ýr Rosenkjær, 19 ára, Huld Hafsteinsdóttir, 20 ára, og Sandra Jónsdóttir, 15 ára, eru allar fiðluleikarar og hafa verið í tónlistarskóla í mörg ár, síðan þær voru börn. Þær stunda nám við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fóru saman til Stade í norðurhluta Þýskalands í tvær vikur í sumar til að taka þátt í alþjóðlegri æskusinfóníuhljómsveit. Allar nema Sandra fóru líka sumarið á undan og líkaði vel en hljómsveitin hefur verið starfrækt frá árinu 1988. Í sumar tóku þær líka þátt í heimildarmynd kvikmyndagerðarmannsins Jans Harlans, sem er mágur hins þekkta leikstjóra Stanleys Kubricks. Harlan er meira en mágur hans því hann vann með Kubrick að þekktum myndum leikstjórans eins og Eyes Wide Shut og The Shining. MYNDATEXTI: Huld, Eydís, Sigrún og Sandra hafa allar spilað lengi á fiðlu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar