Banffsire áhöfn

Rax/Ragnar Axelsson

Banffsire áhöfn

Kaupa Í körfu

Breski togarinn Banffshire er kominn upp úr sandinum í Kvískerjafjöru á Breiðamerkursandi, tæpri öld eftir strandið í janúar 1905. Björn Jóhann Björnsson og Ragnar Axelsson skoðuðu strandstaðinn í gær ásamt Kvískerjabræðrum. Skipið strandaði í miklu ölduróti og illviðri um miðjan janúar árið 1905. Það var á leið frá Aberdeen í Skotlandi til veiða á Íslandsmiðum og hafði stefnan verið tekin á Vestmannaeyjar. Um borð voru 11 skipverjar og björguðust þeir allir. Áttu þeir Birni Pálssyni, bónda á Kvískerjum, líf sitt að launa, sem eftir nokkra leit á sandinum fann þá hrakta og kalda dágóðan spöl frá strandstað. Eftir björgunina tók við erfið ferð með skipbrotsmennina til Reykjavíkur og tók heimferðin sinn toll, eða eitt mannslíf og nokkra hesta. Munaði minnstu að Björn léti einnig lífið í þeirri ferð. MYNDATEXTI: Kvískerjabræður við steinana þar sem talið er að faðir þeirra hafi fundið áhöfnina af Banffshire, um fimm kílómetra frá strandstaðnum. Hafa bræðurnir merkt einn steininn og langar að koma þar upp áletraðri plötu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar