Háskólanemar í þýskum búningum

Háskólanemar í þýskum búningum

Kaupa Í körfu

EFNT verður til októberhátíðar í 600 fermetra tjaldi fyrir framan Háskóla Íslands í dag, föstudag. Þýskunemar við Háskólann standa fyrir þessum atburði og vonast til að fá marga gesti í heimsókn, en í fyrra sóttu um 1.200 manns sams konar hátíð. Dagskráin hefst á hádegi með ávarpi þýska sendiherrans. Aðalhátíðin hefst upp úr klukkan 18. Kynnt verður þýsk menning og boðið upp á þýskan bjór. Af þessu tilefni verður á boðstólum bjór sem kominn er beint frá München, þar sem Októberfest stendur nú sem hæst. Hljómsveitin Léttfeti mun leika lög sem tilheyra. MYNDATEXTI: Skipuleggjendurnir frá vinstri: Silvia Seidenfaden, Páll Heimisson og Særún Dögg Sveinsdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar