Philip S. Kosnett

Philip S. Kosnett

Kaupa Í körfu

Það voru mikil viðbrigði fyrir Philip Kosnett, næstráðanda í bandaríska sendiráðinu í Reykjavík, að koma hingað til Íslands í ágúst en hann hafði áður verið við störf á vegum bandaríska utanríkisráðuneytisins í borginni Najaf í Írak frá janúar og fram í júní á þessu ári. Á þessu tímabili mátti Kosnett venjast því að vera meðal helstu skotmarka uppreisnarmanna í Írak og þá stóð sjítaklerkurinn Moqtada al-Sadr einnig fyrir tveggja mánaða langri uppreisn í Najaf á meðan Kosnett var þar. MYNDATEXTI: Philip Kosnett er næstráðandi í sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar