Tröllateigur í Mosfellsbæ.

Sverrir Vilhelmsson

Tröllateigur í Mosfellsbæ.

Kaupa Í körfu

Nýjar útsýnisíbúðir í hjarta Mosfellsbæjar Mikil uppbygging á sér nú stað í Teigahverfi í Mosfellsbæ. Magnús Sigurðsson kynnti sér nýjar íbúðir í fjölbýlishúsi í smíðum við Tröllateig, en íbúðirnar eru nýkomnar í sölu. Fólksfjölgun hefur verið ör í Mosfellsbæ á undanförnum árum og talsvert meiri en á landsvísu. Mikið hefur því verið byggt í bænum, aðallega í vesturhlutanum. Á þessu ári hefur hins vegar einnig átt sér stað mikil uppbygging við Tröllateig í Teigahverfi og nú eru fyrstu íbúðirnar þar að koma á markað, en þetta er nýtt byggingarsvæði suðaustur af miðbæ Mosfellsbæjar. MYNDATEXTI: Byggingarframkvæmdirnar hafa gengið vel og gert er ráð fyrir, að íbúðirnar verði afhentar fullbúnar í apríl-maí á næsta ári. Fremst sést brúin yfir Vesturlandsveg, en íbúðirnar rísa rétt fyrir sunnan hann. Það er því stutt í verzlanir og þjónustu í Kjarna, hinum megin við Vesturlandsveg.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar