Haust á Njarðargötunni

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Haust á Njarðargötunni

Kaupa Í körfu

LAUFBLÖÐIN tínast af trjánum í fyrstu haustlægðunum þessa dagana og fjúka í tonnatali um borg og bí. Hundurinn Loki Laufeyjarson, sjö ára að aldri, var í sinni heilsubótargöngu um Njarðargötuna, ásamt eigandanum Benný Brynjarsdóttur. Þótt vindar blésu fannst Loka greinilega gaman að leika sér í laufbeðinu og samkvæmt veðurspánni fyrir Reykjavík ætti hann að geta haldið þeim leik áfram í dag. Að minnsta kosti á að lægja og því lítil hætta á að vindurinn feyki hinum lauflétta Loka til.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar