Kvikmyndataka við Hlemm

Þorkell Þorkelsson

Kvikmyndataka við Hlemm

Kaupa Í körfu

"ÞAÐ er búið að breyta Hlemmi í Hlemm annars staðar í heiminum, það má segja það," segir Baltasar Kormákur, leikstjóri kvikmyndarinnar A Little Trip to Heaven, en verið var að taka atriði fyrir kvikmyndina í gærkvöldi og nótt. Hlemmur var orðinn öllu bandarískari en menn eiga að venjast í gærkvöldi, en honum var breytt í vettvang rútuslyss sem á að eiga sér stað snemma í kvikmyndinni. Bandarísku leikararnir Forest Whitaker og Peter Coyote voru meðal leikara í atriðinu á Hlemmi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar