Skemmtileg kvöldstund á Brautarholti

Sigurður Sigmundsson

Skemmtileg kvöldstund á Brautarholti

Kaupa Í körfu

Það voru sannarlega ánægðir áheyrendur sem gengu úr samkomusalnum í Brautarholti á Skeiðum eftir að hafa hlustað á Ingibjörgu Aldísi Ólafsdóttur sópransöngkonu. Söngkonan efnilega lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík árið 2000 og lýkur framhaldsnámi við tónlistarskólann í Nürnberg í Þýskalandi á næsta ári. Á efnisskránni voru innlend og erlend sönglög. Undirleikari var faðir hennar, Ólafur B. Ólafsson, sem m.a. er kunnur fyrir að semja tónverk við eigin texta og skemmta fólki vítt og breitt um landið með leik sínum á píanó og harmonikku.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar