Spástefna ParX Reynir Kristinsson

Spástefna ParX Reynir Kristinsson

Kaupa Í körfu

Framkvæmdastjóri Heims sagði á Spástefnu 2004 að hlutabréfaverð gæti ekki haldið áfram að hækka Ýmis hættumerki eru framundan fyrir efnahagslífið að sögn Benedikts Jóhannessonar, framkvæmdastjóra Heims. Hann sagði á Spástefnu 2004, sem ParX viðskiptaráðgjöf IBM og Frjáls verslun stóðu fyrir í gær, að margir þættir ýttu á neyslu sem gæti þrýst óhóflega á eftirspurn og verðlag. Olíuverð héldist væntanlega hátt áfram og áframhaldandi viðskiptahalli gæti þrýst á gengi krónunnar. MYNDATEXTI: Spástefnan sett Reynir Kristinsson, framkvæmdastjóri ParX, ávarpaði ráðstefnu fyrirtækisins og Frjálsrar verslunar í gær. Spástefnan átti fastan sess á árum áður og hefur nú verið endurvakin.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar