Daníel Reynisson

Daníel Reynisson

Kaupa Í körfu

KRAFTUR, stuðningsfélag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein, og aðstandendur fagna fimm ára afmæli um þessar mundir, en félagið var stofnað 1. október 1999. Af því tilefni verður blásið til göngu á morgun undir yfirskriftinni Göngum sólarmegin. "Félagið var á sínum tíma stofnað sem svar við þörfum þeirra ungu einstaklinga sem árlega greinast með krabbamein," segir Daníel Reynisson, formaður Krafts, en sjálfur greindist hann með eitlakrabbamein fyrir fimm árum og hóf þá að starfa með félaginu. MYNDATEXTI:Með blöðrusleppingunni í lok göngunnar viljum við hvetja fólk til að sleppa óttanum," segir Daníel Reynisson, formaður Krafts.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar