Teiknikeppni - Aníta Hinriksdóttir

Teiknikeppni - Aníta Hinriksdóttir

Kaupa Í körfu

Jæja, þá hefur dómnefndin, undir formennsku Þórodds Bjarnasonar myndlistarmanns, komist að niðurstöðu um vinningshafa í teiknikeppninni. Átta myndir voru valdar og munu þær birtast í Barnablaðinu í dag og á næstu vikum. Dómnefndin hefur aldrei séð jafnmikið af flottum myndum og skilur ekki af hverju þessir kláru krakkar eru ekki alltaf að senda Barnablaðinu myndir. Og vinningshafarnir eru: Steinunn Ólína Hafliðadóttir 8 ára, Bólstaðarhlíð 8 105 Reykjavík, Dagbjört Lilja Svavarsdóttir 6 ára, Drápuhlíð 21 105 Reykjavík, Helga Thoroddsen 11 ára, Þrastarima 19 800 Selfoss, Aníta Hinriksdóttir 8 ára, Brekkustíg 14, Hera Sól Hafsteinsdóttir 9 ára, Hurðarbaki 320 Reykholt, Dagbjört Andrésdóttir 13 ára, Enni, Kjalarnesi116 Reykjavík, Davíð 7 ára, Hvammi, Ölfusi 801 Selfoss, Haukur Þorsteinsson 7 ára, Hagamel 27 107 Reykjavík. Til hamingju krakkar! Þið fáið óvænt bókarverðlaun og flottan trélitakassa í verðlaun. Þið getið nálgast vinninginn í afgreiðslu Morgunblaðsins á skrifstofutíma, eða hringt og fengið hann sendan heim. Takk fyrir þátttökuna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar