Snjóflóð - Saurar í Súðavík - 1994

Ragnar Axelsson

Snjóflóð - Saurar í Súðavík - 1994

Kaupa Í körfu

Slapp nákaldur úr snjóflóði BÓNDINN á Saurum í Súðavík, Karl Georg Guðmundsson, sem er á áttræðisaldri, komst lífs af eftir að snjóflóð féll á bæ hans á sunnudag. Lá hann fastur í snjónum þar til honum var bjargað eftir um hálfan annan klukkutíma. "Ég var eiginlega búinn að gefast upp og bjóst ekkert við því að lifa lengur, enda orðinn nákaldur," segir Karl. Bærinn á Saurum er gjörónýtur eins og sést á myndinni, og fjárhúsin sem glittir í lengst til hægri eru rústir einar. Sex kindur drápust. Flóðið féll úr Tröllagili í Súðavíkurfjalli sem sést í baksýn. (önnur mynd birtist með greininni í blaðinu) filma úr safni, mappa: Náttúruhamfariri 1, snjóflóð, síða 10, röð,4 mynd nr. 24 skyggna líka til, Náttúruhamfarir 1, síða 20, röð 1d

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar