DV ritstjórn í heljargreipum - Eygló Stefánsdóttir

DV ritstjórn í heljargreipum - Eygló Stefánsdóttir

Kaupa Í körfu

Þrír menn kröfðust þess að hitta ritstjóra DV og höfðu uppi hótanir ÞRÍR menn höfðu uppi hótanir á ritstjórn DV í gær og kröfðust þess að fá að hitta Mikael Torfason ritstjóra. Eftir að Reynir Traustason tilkynnti þeim að Mikael væri ekki viðlátinn og bað þá um að yfirgefa húsið réðust tveir mannanna á hann og tóku hann kverkataki þannig að það sá á honum á eftir. Á leiðinni út köstuðu mennirnir niður hillum og fleiru á ritstjórn Fréttablaðsins sem er á sömu hæð. Málið hefur verið kært til lögreglu. MYNDATEXTI: Mennirnir ruddu ýmsum munum um koll á leið sinni út. Á myndinni sést Eygló Stefánsdóttir á myndasafni Fréttablaðsins koma reglu á aftur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar