"Hrikaleg" helgi

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

"Hrikaleg" helgi

Kaupa Í körfu

Valsheimilið | Bikarmótið í kraftlyftingum verður haldið í Valsheimilinu að Hlíðarenda í dag kl. 13. Meðal keppenda verða fjórir Svíar, en hér er um að ræða millilandamót. Á mótinu gefst almenningi kostur á að reyna styrk sinn og kreista klemmu en sá sem fyrstur klemmir vinnur glæsibifreið. Þessir tröllslegu Svíar sviptu níðþungum lóðum á loft fyrir ljósmyndara líkt og fis væri og eiga varla í neinum erfiðleikum með klemmuna, en svo er það spurning hversu vel okkur hinum gengur að láta enda ná saman. Klukkan eitt í dag hefst einnig í Austurbæ Íslandsmót í vaxtarækt, svo segja má að helgin verði all-hrikaleg.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar