Alda Sigurðardóttir

Alda Sigurðardóttir

Kaupa Í körfu

Hvað ertu að gera núna? Ég hef sinnt fræðslu- og jafnréttismálum VR síðastliðin fimm ár. Eitt af því sem er á döfinni núna er starfshópur sem vinnur að því að endurskoða jafnréttisstefnu félagsins. Hver er launamunur kynjanna hjá VR? Þegar tekið er tillit til allra þátta sem hafa áhrif á laun er hann 15% samkvæmt nýjustu launakönnun félagsins. Við höfum unnið að því að minnka launamun og beitt til þess sérstökum aðferðum, til að mynda markaðslaunakjarasamningum, sem fela í sér eitt viðtal við atvinnurekanda á ári til þess að fara yfir starfið og hugsanlega endurskoða laun. Þetta er mjög mikilvægt tæki, sérstaklega fyrir konur, til þess að jafna kjör.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar