Elía í Grafarvogskirkju

Ragnar Axelsson

Elía í Grafarvogskirkju

Kaupa Í körfu

Elía flutt í Grafarvogskirkju ÓRATÓRÍAN Elía eftir Mendelssohn verður sett upp í Grafarvogskirkju í dag kl. 16. Ástæðan er sú að Óperukórinn í Reykjavík og Karlakórinn Þrestir í Hafnarfirði halda á mánudag til Bandaríkjanna til að taka þátt í flutningi á óratóríunni í hinum virta tónleikasal Carnegie Hall í New York hinn 7. nóvember ásamt Garðari Cortes, sem stjórnar uppfærslunni. Af þessu tilefni munu ferðalangarnir ásamt félögum í Sinfóníuhljómsveit Íslands flytja verkið í Grafarvogskirkju og verða einsöngvarar í verkinu þau Bergþór Pálsson í hlutverki Elía, Snorri Wium, Hulda Björk Garðarsdóttir og Alina Dubik. MYNDATEXTI: Garðar Cortes stjórnar fjölmennum flutningi á óratóríunni Elía eftir Felix Mendelssohn í Grafarvogskirkju

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar