Jeff Tunks

Jeff Tunks

Kaupa Í körfu

Það er mikið um að vera í eldhúsinu hjá Sigga Hall. Fjölmennt teymi bandarískra sjónvarpsmanna er búið að stilla upp tækjum sínum og tólum og flóðlýsingin beinist að matreiðslumanni sem stendur við vinnuborð þar sem hann er í óða önn að úrbeina lambahrygg samhliða því að ræða við myndavélina. Hann heitir Jeff Tunks og er með þekktari matreiðslumönnum Bandaríkjanna. Tunks rekur m.a. veitingastaðinn DC Coast í Washington auk þess að eiga hlut í Ten Penh einum vinsælasta veitingastað borgarinnar þar sem áhersla er lögð á matargerð með suðaustur-asískum áhrifum. MYNDATEXTI: Jeff Tunks sem er þekktur matreiðslumaður í Bandaríkjunum gerði glæsilega rétti úr íslensku hráefni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar