Pornopop
Kaupa Í körfu
HLJÓMSVEITIN Pornopop vakti mikla athygli árið 1997 fyrir frumraun sína, Blue, og lýstu sumir gagnrýnendur því yfir að á ferðinni væri plata ársins, hvorki meira né minna. Allar götur síðan hafa tónelskir velt vöngum yfir því hvað sveitin væri að bardúsa sem er að stofni til skipuð tveimur bræðrum, þeim Pétri Jóhanni og Ágústi Arnari Einarssonum. Pornopop hefur reyndar dúkkað upp við og við síðan, aðallega á Airwaveshátíðum, en það er fyrst núna sem þeir félagar stíga rækilega fram sem hljómsveit á nýjan leik og eru að auki með plötu í farteskinu sem heitir því volduga nafni ...And The Slow Songs About The Dead Calm In Your Arms. Pornopop er auk þess komin á kreik sem tónleikasveit og heldur útgáfutónleika í kvöld í Friðrikskapellu. MYNDATEXTI:Pornopop er loksins komin úr felum... ja, svona að mestu leyti.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir