Hönnunarsýning í Marel

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Hönnunarsýning í Marel

Kaupa Í körfu

ÍSLENSK hönnun var í sviðsljósinu í París nú á vordögum er athygli Frakka var beint að þeim fjölmörgu og ólíku viðfangsefnum sem íslenskir hönnuðir takast á við. Sýningin, sem sett var upp í VIA-stofnuninni í París, nefndist Transforme og mátti þar finna verk á fimmta tug hönnuða og listamanna sem sýndu allt frá súkkulaðimolum, skartgripum, búsáhöldum, lömpum, húsgögnum, textíl, fatahönnun, grafískri hönnun og tölvuleikjum til arkitektúrs og snjóflóðavarna. Eftir veruna í París eru munirnir nú komnir hingað til lands og geta gestir og gangandi virt þá fyrir sér í höfuðstöðvum Marels í Hafnarfirði. Fyrirtækið styrkti Transforme úti og hafði að sögn Páls Hjaltasonar arkitekts, sem setti upp sýninguna ásamt konu sinni, Steinunni Sigurðardóttir fatahönnuði, frumkvæði að því að flytja hana hingað til lands. En sýningin var skipulögð af Form Ísland, samtökum hönnuða MYNDATEXTI: Flaska fyrir flöskur. Vínflöskustandurinn Fata morgnana eftir Ólaf Þórðarson

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar