Silkigardínur

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Silkigardínur

Kaupa Í körfu

Í gömlu húsi við Nýlendugötu í Reykjavík verða til lítil listaverk sem síðan prýða heimili landsmanna. "Listamaðurinn", Aðalbjörg Erlendsdóttir, vill þó í hógværð sinni ekki kalla sig listamann, heldur gluggatjalda- og fatahönnuð, enda er hún menntuð sem slík. Aðalbjörg, eða Budda eins og hún kallar sig, er einnig menntaður líffræðingur, en hún daðrar við listagyðjuna með því að hanna, lita og mála á silki, en hún segir að það sé þekkt í líffræðingastéttinni að í þeim blundi listrænn eiginleiki sem þeir virkja eftir hentugleikum. Afurðir Buddu eru aðallega gardínur, púðar og silkislæður. MYNDATEXTI: Óendanlegir möguleikar. Hér má sjá litla og létta skrautgardínu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar