Forsvar

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Forsvar

Kaupa Í körfu

Dæmi um að þekkingariðnaðurinn hafi haldið innreið sína á Hvammstanga er fyrirtækið Forsvar, sem stofnað var árið 1999. Hvorki landbúnaður né sjávarútvegur kemur beint við sögu hjá Forsvari en þar starfa um tíu manns við hugbúnaðargerð, fjarvinnslu, bókhaldsvinnu og viðskiptaráðgjöf. Eigendur eru nokkrir einstaklingar, auk Húnaþings vestra, Byggðastofnunar og Hagfélagsins ehf. MYNDATEXTI: Hluti þeirra sem eru í Forsvari á Hvammstanga. F.v. Örn Steinar Ásbjarnarson tölvunarfræðingur, Aldís Olga Jóhannesdóttir skrásetjari, Kristín Guðmundsdóttir þjónustufulltrúi, Elín R. Líndal og Karl Sigurgeirsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar