Landsliðsæfing

Ragnar Axelsson

Landsliðsæfing

Kaupa Í körfu

"Við verðum litli fiskurinn í tjörninni í þessum leik og ætlum okkur að standa í Norðmönnum sem ætla sér eflaust að vinna okkur stórt í þessum tveimur leikjum. En við höfum trú á því að geta gert góða hluti gegn þessu liði," sagði Helena Ólafsdóttir þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu en í dag fer fram fyrri leikur liðanna í umspili um laust sæti á Evrópumóti landsliða. Leikurinn hefst kl. 17 og fer fram í Egilshöllinni í Grafarvogi. MYNDATEXTI: Kvennalandslið Íslands í knattspyrnu, sem æfði í Egilshöll í gær, stendur frammi fyrir erfiðu verkefni síðdegis er liðið mætir Norðmönnum í umspili Evrópumótsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar