Börn í snjó

Kristján Kristjánsson

Börn í snjó

Kaupa Í körfu

NOKKUÐ snjóaði á Akureyri seinni part vikunnar og var jörð alhvít er bæjarbúar fóru á fætur á föstudagsmorgun. Systkinin Aron Vignir og Erna Erlendsbörn voru ekki sein á sér og voru komin á sleða í brekku skammt frá heimili sínu. Veðurspáin gerir ráð fyrir stífri norðanátt, éljagangi og frosti strax eftir helgi og það færir okkur væntanlega heim sanninn um það að veturinn er genginn í garð af fullum krafti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar