Bruni í Hringrás fólk flutt burt

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Bruni í Hringrás fólk flutt burt

Kaupa Í körfu

Rauði krossinn opnaði neyðarathvarf fyrir hátt í 200 íbúa í Langholtsskóla um miðnætti TUGIR íbúa voru þegar saman komnir í Langholtsskóla skömmu eftir miðnætti í nótt en þar opnaði Reykjavíkurdeild Rauða krossins neyðarathvarf fyrir íbúa sem þurftu að flýja heimili eftir að kolsvartur reykjarmökkur lagðist yfir fjölbýlishús við Kleppsveg og í nágrenninu. Stjórnstöð Almannavarna ríkisins hafði samband við Rauða krossinn og óskaði eftir að opnað yrði neyðarathvarf fyrir íbúa og var viðbúnaður miðaður við að taka þyrfti á móti allt að 200 íbúum. MYNDATEXTI: Þær Gróa Þorleifsdóttir og Anna Halldórsdóttir voru hinar rólegustu í neyðarathvarfinu í Langholtsskóla í gærkvöldi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar