Örleikritasamkeppni

Jim Smart

Örleikritasamkeppni

Kaupa Í körfu

Ferðataskan bar sigur úr býtum í örleikritasamkeppni framhaldsskólanema í Þjóðleikhúsinu UPPSKERUHÁTÍÐ örleikritasamkeppni framhaldsskólanema fór fram í fyrrakvöld í Þjóðleikhúsinu, en fræðsludeild Þjóðleikhússins og leiklistardeild Listaháskóla Íslands stóðu fyrir keppninni með stuðningi SPRON. Fluttu þar þriðjaársnemar leiklistardeildarinnar þau fimm verk sem komust í úrslit af alls 48 verkum sem bárust í keppnina. Áhorfendur í sal völdu það verk sem skaraði fram úr að þeirra mati, en dómnefnd skipuð þeim Maríu Pálsdóttur, deildarstjóra fræðsludeildar Þjóðleikhússins, Ragnheiði Skúladóttur, deildarforseta leiklistardeildar LHÍ, og Rúnari Guðbrandssyni, prófessor við leiklistardeild LHÍ, valdi þrjú efstu sæti keppninnar. MYNDATEXTI: Verðlaunahafar á Örleikritahátíð framhaldsskólanema sem fram fór á Stóra sviði Þjóðleikhússins í fyrrakvöld saman komnir að keppni lokinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar