Sturla Gunnarsson

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Sturla Gunnarsson

Kaupa Í körfu

Gerrie og Louise (Gerrie & Louise) Heimildarmynd. Leikstjórn: Sturla Gunnarsson. Handrit: Steven Silver. Kanada, 1997 Myndin um Gerrie og Louise er 7 ára gömul og rykið tekið að setjast á minningarnar um ógnarástandið sem ríkti í Suður-Afríku á meðan landið var undir aðskilnaðarstjórn hvíta minnihlutans. Gerrie og Louise, sem segir merkilega sögu frá þessum tíma, er ekki síður mikilvæg í dag, mannkynið er svo hættulega fljótt að gleyma misgjörðunum - líkt og fréttastjóri Al-Jazeera, bendir á í Stjórnstöðinni, annarri gæðamynd á þessari athyglisverðu hátíð. MYNDATEXTI: Sturla Gunnarsson

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar