Hringrás í Sundahöfn - Eldsvoði

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Hringrás í Sundahöfn - Eldsvoði

Kaupa Í körfu

"ÉG hef nú þegar rætt við umhverfisráðherra um að í ljósi þessa máls [brunans á svæði Hringrásar] og fleiri förgunar- og úrvinnslumála beri bæði sveitarfélögum og ríki að fara vel yfir alla þá safnhauga og söfnunarstaði, þar sem úrgangur og/eða efni til nýtingar myndast. Ég tel að það sé tímabært að fara yfir þetta mál í heild sinni, þegar vötn sjatna," segir Þórólfur Árnason borgarstjóri. MYNDATEXTI: Þórólfur Árnason borgarstjóri heimsótti í gær húsnæði KFUM þar sem íbúar höfðu athvarf meðan slökkvistarf í Sundahöfn stóð yfir. Hér ræðir hann við Ingu Einarsdóttur og Pál Aronsson sem búa á Kleppsvegi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar