Byggðasafnið og Iðnaðarmannafélagið

Helgi Bjarnason

Byggðasafnið og Iðnaðarmannafélagið

Kaupa Í körfu

Iðnaðarmannafélag Suðurnesja og Byggðasafn Reykjanesbæjar hafa gert samstarfssamning varðandi sögu félagsins, félagsmanna og iðngreinanna. Leggur félagið safninu til þrjár milljónir til þessa starfs, í tilefni af sjötíu ára afmæli félagsins. Karl Hólm, formaður Iðnaðarmannafélagsins, og Árni Sigfússon bæjarstjóri undirrituðu samninginn fyrr í vikunni, við athöfn sem efnt var til í tilefni af afhendingu menningarverðlauna Reykjanesbæjar. MYNDATEXTI: Samið Sigrún Ásta Jónsdóttir, Árni Sigfússon og Karl Hólm staðfesta samstarfssamning Byggðasafns Reykjanesbæjar og Iðnaðarmannafélagsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar