Sigurður Ásgeirsson

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Sigurður Ásgeirsson

Kaupa Í körfu

Sigurður Ásgeirsson bjargaði níu ára telpu eftir glæpsamlegt brottnám Lýst eftir manni sem skildi barnið eftir á Mosfellsheiði SIGURÐUR Ásgeirsson úr Mosfellsbæ bjargaði í fyrrakvöld níu ára telpu frá því að verða úti uppi á heiðum um hávetur þegar hann ók fyrir tilviljun fram á hana við Skálafellsafleggjara á Mosfellsheiði. Karlmaður hafði fyrr um daginn lokkað barnið inn í bíl til sín í Kópavogi og skilið það eftir á Þingvallavegi. Það varð telpunni til happs að Sigurður ók fram á hana, líklega meira en klukkustund síðar. MYNDATEXTI: Sigurður Ásgeirsson, bjargvættur stúlkunnar, á jeppanum sem hann ók í fyrrakvöld.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar